Færsluflokkur: Bloggar
24.10.2007 | 09:14
Vörutalningu lokið og konukvöld framundan.
Já varan hefur verið talin. Annaðkvöld ætla Hr. Helga, Drífa Jóna, Steinunn og Anna Sigga að skella sér á konukvöld Zik-Zak og Broadway. Þar verður heill hellingur af konum á hinum og þessum vörum. Sumar á Herbalife.. Aloe Vera.. Nupo Létt og Bónus-Vörum. Með þykkar varir eða þunnar það skiptir ekki meginmáli þegar kvinnur koma saman og hlæja að Ladda kallinum.
Fleiri fréttir af því og "aðalfundinum" koma inn um helgina.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
19.10.2007 | 12:28
UPPLYFTING
Já við pæjurnar í Upplyftingu ákváðum að lofa ykkur fylgjast með því sem á daga okkar drífur. Það sem gerst hefur fram að þessu er að við skelltum okkur á "VÖRUNA". "VARAN" er heldur betur að gera sig fyrir okkur. "Varan" er ekki bara góð heldur er hún nokkuð holl líka. Við erum allar með smart "varir" enda notum við gloss frá framleiðendum "vörunnar". Þið munið heyra meira frá okkur eftir helgina. Enda er "vörutalning" og við komum ekki til með að hafa tíma í að blogga. Vonandi vilja allir fylgjast með og jafnvel vera með.. við erum komnar til að "vera" enda á "vörunni". Þetta hross er með fallegt bros og huggulegustu "varir" en hvort sá svarti er á "vörunni" veit ég ei. bless í bili og góða helgi. |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)